Skrúbbkrem 3-in-1 Vibrant Sea Salt
Skrúbbkrem 3-in-1 Vibrant Sea Salt
Share
Hér sameinast 3 vörur í einni - Hreinsar, skrúbbar og nærir!
Skrúbbkremið hreinsar, skrúbbar og nærir húðina á sama tíma. Kremið inniheldur smáar sjávarsaltagnir sem hreinsa burt dauðar húðfrumur og kókosolía sér um að næra og vernda húðina. Húðin verður skínandi hrein og silkimjúk. Kremið er með ferskum og hressandi ilm.
- Plastfrítt - Umbúðir úr pappír
- Cruelty Free & Vegan
- ÁN silíkons, parabena, míkróplasts og pálmaolíu
Húðgerð: allar húðgerðir
PH: 6,3
Stærð: 250 gr (ca 20 skipti)
Ending: 12 mánuðir eftir opnun
Uppruni: Þýskaland
Notkun:
Nuddið létt yfir raka húð og skolið síðan vel af. Kremið er mjög drjúgt og betra að taka minna en meira. Má nota daglega.
Geymsla & frágangur:
ATH! Umbúðirnar eru úr fituþolnum pappa og þess vegna verður að halda þeim frá raka og bleytu. Við mælum með því að annaðhvort taka hvern skammt úr og fara með inn í sturturými í öðru íláti eða færa innihaldið í annað margnota ílát.
Umbúðirnar eru úr 100% pappa og fara þær pappírsendurvinnslu eftir notkun. Munið að hreinsa vel pappann.
Innihald:
SODIUM CHLORIDE, GLYCERIN, AQUA, SODIUM LAUROYL ISETHIONATE, SORBITOL, DISODIUM LAURYL SULFOSUCCINATE, COCOS NUCIFERA OIL, PERFUME, LEVULINIC ACID, POTASSIUM SORBATE.