Skilmálar

Sendingarmáti og afgreiðsla

Pantanir eru afgreiddar á 1-3 virkum dögum. 

Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu á pöntunum yfir 6000 kr.

Við bjóðum uppá fría heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu fyrir allar pantanir yfir 6000 krónum. Heimsendingar á höfuðborgarsvæðinu eru keyrðar út 1-5 virkum dögum eftir að pöntun berst. Kaupandi fær tilkynningu um það hvenær von er á sendingunni. Sé varan ekki til á lager höfum við samband og tilkynnum um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. 

Sendingar út á land

Sendingarkostnaður fyrir pantanir utan höfuðborgarsvæðis er 1500 krónur. Sending er sótt á næsta pósthús. Fyrir allar pantanir sem eru sendar með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Öskur ber enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Öskur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilmálar

Skilað eða skipt

Skilaréttur er í 14 daga vegna kaupa á vöru gegn því að framvísun sölureikningings. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnóta er í formi kóða sem er notaður í netversluninni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Greiðslumáti

Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. 

Gölluð vara 

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Öskur allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðir ef þess er óskað. 

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness

Skilmálar þessir gilda frá 30.mars 2021