Þurrsjampó Áfylling - Skollitað og brúnt hár - Mojito
Þurrsjampó Áfylling - Skollitað og brúnt hár - Mojito
Share
Vegan þurrsjampó sem frískar upp á hárið á milli þvotta. Duftið bindur fitu og gefur góðan ilm af hárinu. Það þarf ekki að nota mikið af því í einu og er það mjög endingargott. Það besta hins vegar við þetta þurrsjampó er að það er gert úr náttúrulegum efnum, er plastfrítt og inniheldur ekki driflofttegundir.
Áfyllingin er sniðug leið til að minnka enn frekar sóun og kemur hún í nettum pappírspoka. Þá velur hver og einn sitt eigið ílát og aðferðina sem þeim þykir best að nota.
Frískandi ilmur af mojito kemur öllum í gott skap. Mælt með fyrir skollitað og brúnt hár.
Notkun: Einfaldlega dustið smá í lófann og berið svo í hárið með fingrunum. Við mælum með að nota lítið í einu og bæta við smátt og smátt eftir þörfum. Ef duftið fer á föt þá er betra að dusta það af og ekki nudda. Þvoið hendur vel á eftir.
100 gr
Geymsla: Geymist á þurrum dimmum stað í upprunalegum umbúðum
Endist í 12 mánuði eftir opnun
Uppruni: Þýskaland
- Plastfrítt - Umbúðir úr pappír
- Cruelty Free & Vegan
- ÁN silíkons, parabena, míkróplasts og pálmaolíu
Innihald: Morokkóskur hraunleir, maíssterkja, matarsódi, sítrónubarkarolía, sæt appelsínuolía og lyktarefni.